Helga lauk BA-prófi í hagfræði og enskum bókmenntum frá Harvard University 1988 og MBA prófi frá London Business School árið 1994. Helga hefur unnið hjá Estée Lauder UK, Merrill Lynch International Europe og Útflutningsráði Íslands. Helga hefur jafnframt starfað sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi og aðstoðarmaður Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra. Helga hóf störf hjá Nýsköpunarsjóði í ágúst 2009 og var ráðin framkvæmdastjóri í mars 2010.
Egill lauk BS-prófi í tölvunar- og eðlisfræði frá Háskólanum í Kaupmannahöfn 1987 og MS-prófi í tölvunarfræði frá sama skóla 1990. Hann starfaði sem forritari hjá Niels Bohr Institut og við rannsóknir hjá NEuroTech A/S í Danmörku. Egill starfaði hjá Taugagreiningu hf. í 16 ár, fyrst við rannsóknir og síðar sem framkvæmdastjóri. Hann vann síðan við markaðsstörf hjá bandaríska félaginu CareFusion í þrjú ár og var yfirmaður viðskiptagreindar og hugbúnaðarhögunar hjá Arion banka í þrjú ár. Egill hóf störf hjá Nýsköpunarsjóði 2010.
Finnur Árnason er stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og búfræðingur frá Hvanneyri. Hann lauk BSc.-námi í efnafræði við Háskóla Íslands og fil. cand.-prófi í rekstrarhagfræði frá Háskólanum í Gautaborg. Finnur hóf störf hjá Nýsköpunarsjóði á árinu 1999 og hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja.
Gísli lauk stúdentsprófi frá MR og útskrifaðist frá viðskiptadeild Háskóla Íslands árið 1971. Gísli hefur unnið hjá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins frá stofnun. Áður var hann sérfræðingur hjá Iðnlánasjóði og hafði þá m.a. umsjón með vöruþróunar- og markaðsdeild sjóðsins. Eftir útskrift frá viðskiptadeild HÍ starfaði Gísli sem skrifstofustjóri hjá Félagi íslenskra iðnrekenda í fjögur ár og útibússtjóri hjá Iðnaðarbanka Íslands hf. í eitt ár.
Hekla lauk C.Sc. prófi í Véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands vorið 1999. Frá því að námi lauk starfaði hún hjá stoðtækjafyrirtækinu Össuri hf, fyrst við vöruþróun og prófanir í þróunardeild en síðar við markaðssetningu og vörustjórn á Asíumarkaði. Hekla tók þátt í að setja á stofn útibú Össurar í Shanghai og rekstri þess fyrsta árið. Hekla hóf störf hjá Nýsköpunarsjóði sumarið 2010 og er einn af fjárfestingastjórum sjóðsins.
Smári er fjármálastjóri Nýsköpunarsjóðs og hefur verið það frá stofnun hans 1998. Hann starfaði áður hjá Fiskveiðasjóði Íslands frá 1978 - 1997, fyrst sem bókari og svo deildarstjóri tölvudeildar. Hann gegndi stöðu aðalbókara hjá Fiskveiðasjóði Íslands árið 1992-1997.
Svala hóf störf hjá Nýsköpunarsjóð árið 2002 og er með réttindi sem viðurkenndur bókari frá Háskólanum í Reykjavík..