Orri er vélaverkfræðingur frá HÍ og MBA frá Harvard Business School. Orri er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins síðan í ágúst árið 2010. Hann hefur gegnt ýmsum stjórnunarstöðum og hefur undanfarin ár sinnt fjárfestingum og setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja fyrir hönd Novator, aðallega á sviði fjarskipta og hreinna orkugjafa í Bandaríkjunum og á Norðurlöndum. Orri situr í stjórn lífeyrissjóðsins Gildis. Hann var áður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Símans og aðstoðarmaður forsætisráðherra á árunum 1997 - 2000.
Guðný er fædd og uppalin í Keflavík og stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún lauk cand. oecon-prófi í viðskiptafræðum af fjármálasviði frá Háskóla Íslands árið 1998. Hún var ráðgjafi hjá Streng hf. 1998- 2002 og sveitarstjóri á Raufarhöfn 2002-2006. Frá árinu 2006 hefur Guðný starfað sem viðskiptastjóri hjá Maritech ehf. Guðný er varaformaður stjórnar NSA, stjórnarformaður Ábyrgðarsjóðs launa og situr sem varamaður í stjórn Samkeppniseftirlitsins.
Arnar er fæddur í Vestmannaeyjum 1943. Hann hefur verið formaður Samtaka fiskvinnslustöðva – SF – frá 1987 og formaður stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða frá 2006. Arnar tók virkan þátt í undirbúningi að stofnun Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins árið 1997 fyrir hönd sjávarútvegsins og hefur átt sæti í stjórn sjóðsins frá upphafi, þar af sem formaður frá 1997-2004 og 2010. Arnar átti sæti í bæjarstjórn Vestmannaeyja um fimmtán ára skeið og hefur frá 2006 verið formaður framkvæmda- og hafnarráðs Vestmannaeyjabæjar.
Finnbjörn er fæddur í Reykjavík 1954. Hann er húsasmiður, með uppeldis- og kennslufræðimenntun frá KHÍ og diplómanám í mannauðsstjórnun frá HR. Finnbjörn hefur verið formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur, nú Fagfélagsins, frá 1997 og Samiðnar, sambands iðnfélaga frá 1998. Hann tók þátt í undirbúningi að stofnun Nýsköpunarsjóðs og var varamaður í stjórn á árunum 1997 - 2001. Finnbjörn hefur verið stjórnarmaður í NSA frá 2010. Finnbjörn situr í miðstjórn ASÍ og stjórn Iðunnar fræðsluseturs auk ýmissa nefnda og ráða á vegum verkalýðshreyfingarinnar.
Sigrún er fædd í Reykjavík 1955 og uppalin í Kópavogi. Hún starfaði hjá Tryggingastofnun ríkisins og Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins 1978-1983. Sigrún var sauðfjárbóndi frá 1983-2000 og ferðaþjónustubóndi frá 1988. Sigrún situr í stjórn Félags ferðaþjónustubænda, Selaseturs Íslands og er formaður ferðamálafélags Vestur–Húnavatnssýslu.