Um sjóðinn

Stefna NSA er að vinna með öðrum fjárfestum

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins leggur áherslu á að vinna með öðrum innlendum og erlendum fag-fjárfestum og tekur þátt í sjóðasjóðum til eflingar á áhættufjárfestingum í vænlegum nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum innanlands og utan.

Sjóðurinn gerir sambærilegar kröfur til ávöxtunar fjármuna og aðrir áhættufjárfestar og lögð er áhersla á að rækta tengsl við fjárfesta sem eru líklegir til þess að koma að álitlegum nýsköpunarfyrirtækjum.

Starfsmenn NSA eru meðvitaðir um að fjárfesting í nýsköpunarfyrirtækjum er áhættusöm og þarfnast þolinmóðs fjármagns en getur jafnframt borið háa ávöxtun Starfsmenn sjóðsins vinna stöðugt að því að starfshættir sjóðsins beri vott um þá fagmennsku sem þarf til að skapa traust og tiltrú hjá samstarfsaðilum, eigendum og viðskiptavinum.


Ef þú hefur áhuga á að fjárfesta með Nýsköpunarsjóð þá hafðu samband við framkvæmdastjóra sjóðsins Helgu Valfells.


 

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica