Hlutafjárþátttaka
Meginstarfsemi Nýsköpunarsjóðs fellst í kaupum á hlutafé í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum en fyrir framlag sjóðsins eignast hann hlutdeild í fyrirtækinu. í samræmi við það verðmat sem eigendur viðskiptahugmyndarinnar og Nýsköpunarsjóður koma sér saman um. Meginreglan við fjárfestingar sjóðsins er sú, að aðrir fjárfestar komi á sama tíma að fyrirtækinu til að tryggja að nægjanlegt fjármagn sé til staðar til að fylgja viðskiptahugmyndinni eftir.Stjórn Nýsköpunarsjóðs ákveður árlega hversu mikið fjármagn verður til ráðstöfunar til kaupa á hlutafé í nýjum fyrirtækjum og hversu miklu verður varið til þess að fylgja eftir fyrri fjárfestingum sjóðsins.
Eru takmarkanir á þátttöku sjóðsins í einstökum viðskiptahugmyndum?
Við mat á þátttöku Nýsköpunarsjóðs í sprotafyrirtæki er fyrsta meginreglan sú að viðskiptahugmyndin má ekki vera í beinni samkeppni við starfandi fyrirtæki á innanlandsmarkaði. Því þarf að vera tryggt, að viðskiptahugmyndin hafi ákveðið nýsköpunargildi hér á landi. Enn fremur þarf hugmyndin að uppfylla væntingar sjóðsins m.t.t. ávöxtunar á því fjármagni sem sett er í viðskiptahugmyndina.Hvernig er fjárfestingatækifærum komið á framfæri við Nýsköpunarsjóð?
Með öllum fjárfestingatækifærum þarf að liggja fyrir fullbúin viðskiptaáætlun sem lýsir viðskiptahugmyndinni og þeim forsendum sem liggja að baki. Mikilvægt er, að áætlunin sé byggð á raunhæfum forsendum, að fjallað sé um mögulega útgöngu fjárfesta og væntanlegan arð af fjárfestingunni, gangi áætlanir eftir.Hvað tekur langan tíma fyrir sjóðinn að ákveða hvort áhugi sé á þátttöku í fyrirtækinu eða hugmyndinni?
Einu sinni í viku funda starfsmenn sjóðsins og fara yfir þau fjárfestingatækifæri sem ætlunin er að skoða. Á þeim fundum er settur ábyrgðaraðili á hvert mál en falli þau ekki að starfsemi sjóðsins er það yfirleitt tilkynnt til forsvarsmanns viðskiptahugmyndarinnar innan 14 daga frá því að gögnin hafa verið skoðuð af ábyrgðaraðila innan sjóðsins. Að öðrum kosti er farið ítarlega yfir viðskiptaáætlun fyrirtækisins. Ef einhver gögn vantar að mati starfsmanna sjóðsins er eftir þeim kallað við fyrsta tækifæri. Næsta skref er að ábyrgðaraðili verkefnisins hittir frumkvöðulinn og aðra aðstandendur viðskiptahugmyndarinnar, þar sem hann eða þeir kynna hugmyndina og viðskiptaáætlun sína í heild sinni.
Sá tími sem getur liðið frá því að fjárfestingatækifæri berst sjóðnum og þar til einhver ákvörðun liggur fyrir getur tekið allt frá 14 dögum, ef umsóknin fellur ekki að starfsemi sjóðsins, upp í nokkra mánuði, allt eftir eðli viðskiptahugmyndarinnar og hversu flókin og viðamikil hún er. Ekki er óalgengt, bæði hér á landi og erlendis, að það geti tekið allt að 6 mánuði að ganga endanlega frá fjárfestingu í viðskiptahugmynd.
