Um sjóðinn
Íslenskur áhættufjárfestir
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins er áhættufjárfestir sem fjárfestir í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum þar sem vænta má mikils virðisauka og arðsemi af starfseminni og góðrar ávöxtunar.
Sjóðurinn er rekinn á grundvelli eigin tekna og nýtur engra ríkisframlaga. Hagnaði Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins er varið til frekari fjárfestinga í fyrirtækjum.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins leggur áherslu á að vinna með öðrum innlendum og erlendum fjárfestum og tekur þátt í sjóðasjóðum til eflingar á áhættufjárfestingum í vænlegum nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum innanlands og utan.
