Nýsköpunarsjóður atvinnulifsins

JA slide show
Frumtak á fulla ferð
þriðjudagur, 06. 01 2009

“Óvissu hefur verið eytt með stofnun nýja fjárfestingarsjóðsins Frumtaks”

“Það er mjög ánægjulegt að nú hefur allri óvissu verið eytt um framtíðarrekstur Frumtaks sem Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Glitnir, Kaupþing banki, Landsbanki Íslands og sex lífeyrissjóðir stofnuðu s.l. sumar” segir Finnbogi Jónsson, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs og stjórnarformaður Frumtaks.

Upphaflega var gert ráð fyrir að stærð sjóðsins yrði 4.650 milljónir króna en nú liggur fyrir að hlutafjárframlag viðskiptabankanna mun lækka úr 500 milljónum króna frá hverjum banka í 300 milljónir króna. Hlutur Nýsköpunarsjóðs og lífeyrissjóðanna er hins vegar óbreyttur og mun heildarstærð sjóðsins þá verða 4.050 milljónir króna. Rekstur Frumtaks hófst í ágúst s.l. þegar Dr. Eggert Claessen var ráðinn framkvæmdastjóri sjóðsins. Fjöldi verkefna hefur verið til skoðunar hjá Frumtaki á síðustu mánuðum en engar ákvarðanir hefur verið hægt að taka vegna þeirrar óvissu sem skapaðist við hrun bankanna í byrjun október og síðan vegna frumvarps til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Nánar...
 
Hugbúnaðarlausnir
þriðjudagur, 18. 11 2008

Sprotafyrirtækið Stiki hefur nú selt áhættumatsbúnað til stórs fyrirtækis í Bretlandi. Samningar voru undirritaðir á sama tíma og Bretar og Íslendingar deildu hart um Icesave reikningana með þeim afleiðingum að Bretar beittu fyrir sig hryðjuverkalögum. Stofnað hefur verið sérstakt fyrirtæki í Bretlandi sem ætlað er að markaðssetja hugbúnaðarlausnir Stika.

Nánar...
 
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 19 - 21 af 25

Ársskýrsla NSA 2009

Hægrismelltu á myndina
til að ná í ársskýrsluna.

Hlutafjárþátttaka

Meginstarfsemi Nýsköpunarsjóðs felst í kaupum á hlutafé í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum en fyrir framlag sjóðsins eignast hann hlutdeild í fyrirtækinu.

Meiri upplýsingar...

Lán með breytirétti

Nýsköpunarsjóður getur veitt nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum lán með breytirétti í hlutafé.

Meiri upplýsingar...

Forsíða

Lán með breytirétti

Design templateLán til nýsköpunar- og sprotafyrirtækja með breytirétti í hlutafé. Meira...

Skjalasafn

Hér er að finna ýmis skjöl sem hægt er að sækja. Meira...

Innranet NSA

 Joomlart ForumÞetta er innri vefur NSA og aðeins opinn starfsmönnum og samstarfsaðilum. Meira...