Nýsköpunarsjóður atvinnulifsins

JA slide show
Frumtak fjárfestir í AGR
þriðjudagur, 21. 04 2009


Hálfdan G. Gunnarsson, Eggert Claessen, Haukur Þór Hannesson , Finnbogi Jónsson og Friðrik Snorrason

Frumtak hefur lokið annarri fjárfestingu sinni og fest kaup á hlut í AGR - Aðgerðargreiningu ehf.  AGR var stofnað árið 1998 í framhaldi af rannsóknarverkefnum við verkfræðideild Háskóla Íslands. Í nánu samstarfi við Rannís og Háskólann í Reykjavík hefur fyrirtækið undanfarin ár þróað aðferðir og hugbúnað fyrir alþjóðlegan markað. Helsta afurð fyrirtækisins er AGR Inventory Optimiser sem innleitt hefur verið hjá yfir 50 fyrirtækjum í 11 löndum. Grunnþróun AGR hefur alfarið farið fram hérlendis í samstarfi við fyrirtæki í vörudreifingu, framleiðslu og verslun. Kerfið framkvæmir söluspár fyrir hverja vöru og velur sjálfvirkt þá fræðilegu spáaðferð sem hentar best fyrir hverja vöru. Kerfið reiknar síðan út hversu miklar öryggisbirgðir fyrirtæki þurfa og leitast við að lágmarka það fé sem bundið er í birgðum en á sama tíma að eiga vöruna tiltæka þegar viðskiptavinurinn þarf á vörunni að halda.

Nánar...
 
Byr í seglum Hafmyndar ehf.
mánudagur, 16. 03 2009
Í lok síðasta árs keypti Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins nýtt hlutafé í Hafmynd ehf. að verðmæti 50 milljónir króna en fyrr á því ári hafði Nýsköpunarsjóður veitt félaginu lán að upphæð 100 milljónir króna. Nýtt fé gerði Hafmynd kleyft að starfa áfram og standa við og gera nýja framleiðslusamninga en fjármögnun framleiðslu hefur verið mjög erfið í þeim efnahagsþrengingum sem herjað hafa að undanförnu.

Í kjölfar hlutafjáraukningarinnar seldi Hafmynd tvö djúpför sem ætluð eru til sprengjuleitar á vegum NATO. Nýlega gekk félagið frá samningi um sölu tveggja annara djúpfara til NCS Survey í Bretlandi en það félag annast meðal annars eftirlit með olíupípum í sjó víðsvegar um heiminn. Nýja Kaupþing kemur að fjármögnun framleiðslunnar. Með þessum samningum hefur Hafmynd tryggt sér yfir 400 milljón króna veltu á árinu. Líkur eru á að félagið nái í fyrsta skipti rekstrarhagnaði af sinni starfsemi en á þessu ári eru 10 ár liðin frá stofnun þess.
Nánar...
 
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 16 - 18 af 25

Ársskýrsla NSA 2009

Hægrismelltu á myndina
til að ná í ársskýrsluna.

Hlutafjárþátttaka

Meginstarfsemi Nýsköpunarsjóðs felst í kaupum á hlutafé í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum en fyrir framlag sjóðsins eignast hann hlutdeild í fyrirtækinu.

Meiri upplýsingar...

Lán með breytirétti

Nýsköpunarsjóður getur veitt nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum lán með breytirétti í hlutafé.

Meiri upplýsingar...

Forsíða

Lán með breytirétti

Design templateLán til nýsköpunar- og sprotafyrirtækja með breytirétti í hlutafé. Meira...

Skjalasafn

Hér er að finna ýmis skjöl sem hægt er að sækja. Meira...

Innranet NSA

 Joomlart ForumÞetta er innri vefur NSA og aðeins opinn starfsmönnum og samstarfsaðilum. Meira...