Nýsköpunarsjóður atvinnulifsins

JA slide show
Evrópska fyrirtækjavikan 2010 PDF  | Prenta |  Senda

Kynningarfundur um stuðning við nýsköpun

Tíu frumkvöðlar og fulltrúar fyrirtækja í nýsköpun miðla af reynslu sinni og hátt í tuttugu aðilar úr stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi kynna þjónustu sína á kynningarfundi á Grand hótel 26. maí. Markmið kynningarinnar er að veita heildaryfirsýn og skapa umræðu um stuðning við nýsköpun á Íslandi.

Á fundinum verða tvær málstofur, annars vegar fyrir einstaklinga með nýjar viðskiptahugmyndir og fyrirtæki í startholunum og hins vegar fyrir þroskaðri sprotafyrirtæki og fyrirtæki í nýsköpun.  

Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Rannís, Samtök iðnaðarins og Útflutningsráð ásamt Hátækni- og sprotavettvangi standa að fundinum í tilefni af evrópsku fyrirtækjavikunni SME Week 2010 sem haldin er hátíðleg um alla Evrópu dagana 25. maí - 1. júní.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku

Dagskrá

8:45 - 9:15          Kynningarbásar opnaðir
9:15 - 9:40          Stuðningur við nýsköpun á Íslandi
9:40 - 11:00        Málstofur: Reynsla frumkvöðla og fyrirtækja í nýsköpun
11:00 - 12:00     Aðilar kynna þjónustu sína í básum  

Aðilar í básum: Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Útflutningsráð, Rannís, Samtök iðnaðarins, Innovit, Klak- nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins, Hugmyndahús háskólanna, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Frumtak, Einkaleyfastofa, Kauphöllin, Hönnunarmiðstöð, Byggðastofnun, Vinnumálastofnun og Matís
 

 

Ársskýrsla NSA 2009

Hægrismelltu á myndina
til að ná í ársskýrsluna.

Hlutafjárþátttaka

Meginstarfsemi Nýsköpunarsjóðs felst í kaupum á hlutafé í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum en fyrir framlag sjóðsins eignast hann hlutdeild í fyrirtækinu.

Meiri upplýsingar...

Lán með breytirétti

Nýsköpunarsjóður getur veitt nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum lán með breytirétti í hlutafé.

Meiri upplýsingar...

Forsíða

Lán með breytirétti

Design templateLán til nýsköpunar- og sprotafyrirtækja með breytirétti í hlutafé. Meira...

Skjalasafn

Hér er að finna ýmis skjöl sem hægt er að sækja. Meira...

Innranet NSA

 Joomlart ForumÞetta er innri vefur NSA og aðeins opinn starfsmönnum og samstarfsaðilum. Meira...