|
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
Kringlunni 7, 3 hæð
103 Reykjavík
Sími: 510 1800
Fax: 510 1809
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
Kt: 691097-2859
Opnunartími
Opið frá 09:00 til 12:00 og 13:00 til 16:00
Tilurð og saga NSA
Aðdragandi að uppstokkun á fjárfestingalánasjóðum iðnaðar og sjávarútvegs og stofnun Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins var nokkuð langur og strangur ferill. Segja má að viðræður milli fulltrúa stjórnvalda og samtaka í iðnaði og sjávarútvegi hafi farið af stað með formlegum hætti haustið 1994.
Í fyrstu var tekist á um eignarhlut atvinnugreinanna í Fiskveiðasjóði og Iðnlánasjóði og hversu víðtæk sameining og hlutafélagavæðing sjóðanna væri heppileg. Þannig stóðu mál þegar gengið var til alþingiskosninga í apríl 1995.
Vorið 1996 var endurskipulagning sjóðakerfisins tekin til umræðu á nýjan leik og þá hafði ráðuneytisstjórum í forsætis-, iðnaðar- og sjávarútvegsráðuneytis verið falið að leiða þessar viðræður af hálfu stjórnvalda. Haldnir voru nokkrir fundir með fulltrúum samtaka í sjávarútvegi og iðnaði og þess freistað að ná sameiginlegri niðurstöðu um endurskipulagningu og sameiningu sjóða sjávarútvegs og iðnaðar og stofnun nýsköpunarsjóðs. Samkomulag um stofnun Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins með stofnfé að upphæð 4.000 milljónir króna tókst í öllum meginatriðum milli fulltrúa stjórnvalda og samtaka í iðnaði og sjávarútvegi í árslok 1996. Auk þess skyldi eigið fé Vöruþróunar- og markaðsdeildar Iðnlánasjóðs haldið aðgreindu til sérstakrar ráðstöfunar á fyrstu þremur starfsárum Nýsköpunarsjóðs.
Í kjölfarið fylgdu frumvörp viðskiptaráðherra um stofnun Nýsköpunarsjóðs og Fjárfestingabanka atvinnulífsins hf.
Í meðförum Alþingis var bætt við frumvarpið ákvæðum um stofnun sérstaks upplýsinga- og hátæknisjóðs við Nýsköpunarsjóð með áherslu á landsbyggðina með stofnfé að upphæð 1000 milljónir króna, sem fjármagnað var með sölu á hlutabréfum ríkissjóðs í Fjárfestingabanka atvinnulífsins hf. síðar það ár.
Frumvarp til laga um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins var samþykkt rétt fyrir þinglok í maí árið 1997, samtímis og lögin um Fjárfestingabanka atvinnulífsins hf. og breytingin á ríkisviðskiptabönkunum í hlutafélög.
Í 1. grein laga um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins segir að sjóðurinn sé sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins. Áhrif atvinnulífsins á stjórn sjóðsins fela þó í sér viðurkenningu stjórnvalda á hlutverki þess við uppbyggingu eiginfjár fjárfestingalánasjóða iðnaðar og sjávarútvegs á undanförnum áratugum.
Þann 10. sept. 1997 tók stjórn Nýsköpunarsjóðs til starfa, en hana skipuðu fimm aðalmenn og fimm til vara. Meðal fyrstu verkefna stjórnarinnar var að ráða framkvæmdastjóra og var Páll Kr. Pálsson hagverkfræðingur einróma valinn úr hópi 18 umsækjenda sem fyrsti framkvæmdastjóri sjóðsins. Mjög mikil vinna var fólgin í mótun starfsreglna fyrir sjóðinn og Vöruþróunar- og markaðsdeild, auk þess sem stjórn og varastjórn tóku virkan þátt í vinnu við reglugerðardrög fyrir stofnsjóð Nýsköpunarsjóðs og hátæknisjóðsins sem hlaut nafnið Framtakssjóður.
Fyrsta framkvæmdastjóra sjóðsins, sem hóf störf í byrjun október 1997 beið ærinn starfi. Ráða þurfti starfsfólk úr hópi starfsmanna Iðnlánasjóðs, Iðnþróunarsjóðs og Fiskveiðasjóðs, útvega heppilegt húsnæði auk fjölmargra annarra verkefna sem óhjákvæmilega fylgja undirbúningi að starfsemi slíks sjóðs. Sjóðurinn hóf starfsemi að Suðurlandsbraut 4 í hluta af því húsnæði sem Fiskveiðasjóður hafði til umráða.
Með stofnun Fjárfestingabanka atvinnulífsins og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins um áramótin 1998 urðu kaflaskil í starfsemi á fjármagnsmarkaði og nýsköpunar hér á landi.
Árið 1999 var Úlfar Steindórsson, viðskiptafræðingur ráðinn framkvæmdastjóri sjóðsins í stað Páls Kr. Pálssonar sem verið hafði framkvæmdastjóri frá stofnun sjóðsins. Úlfar lét af störfum í ársbyrjun 2003 og tók þá við starfinu Gunnar Örn Gunnarsson verkfræðingur, hann lét af störfum í janúar 2006 og tók þá við starfinu Finnbogi Jónsson verkfræðingur, hann lét af störfum í mars 2010. Núverandi framkvæmdarstjóri er Helga Valfells. Hjá Nýsköpunarsjóði starfa 6 manns.
|