Nýsköpunarsjóður atvinnulifsins

Í brennidepli
Hér er að finna það markverðasta sem er að gerast hjá Nýsköpunarsjóði hverju sinni eða þeim fyrirtækjum sem sjóðurinn er hluthafi í.

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Eyrir Invest fjárfesta í ReMake Electric

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Eyrir Invest hafa undirritað samning um kaup á hlutafé í hátæknifyrirtækinu Remake Electric ehf. og var hluthafasamkomulag þess efnis undirritað 31. ágúst 2010. Fjárfestingin verður í nokkrum áföngum og eru greiðslur háðar framgangi verkefna. Að þeim loknum mun Nýsköpunarsjóður eiga 18% hlut í félaginu og Eyrir Invest 20% hlut. Það er markmið þessara hluthafa að byggja upp ReMake Electric sem öflugt íslensk hátæknifyrirtæki, leiðandi á sínu sérsviði á alþjóðavísu. 

Nánar...
 
Ársfundur Nýsköpunarsjóðs Atvinnulífsins

 
Evrópska fyrirtækjavikan 2010

Kynningarfundur um stuðning við nýsköpun

Tíu frumkvöðlar og fulltrúar fyrirtækja í nýsköpun miðla af reynslu sinni og hátt í tuttugu aðilar úr stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi kynna þjónustu sína á kynningarfundi á Grand hótel 26. maí. Markmið kynningarinnar er að veita heildaryfirsýn og skapa umræðu um stuðning við nýsköpun á Íslandi.

Á fundinum verða tvær málstofur, annars vegar fyrir einstaklinga með nýjar viðskiptahugmyndir og fyrirtæki í startholunum og hins vegar fyrir þroskaðri sprotafyrirtæki og fyrirtæki í nýsköpun.  

Nánar...
 
Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins fjárfesti fyrir 1 milljarð á árinu 2009
Rekstur Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins gekk vel á árinu 2009 og skilaði sjóðurinn 13  milljóna króna hagnaði og handbært fé frá rekstri  nam 252 milljónum króna.

Á árinu fjárfesti Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins fyrir samtals 1.042 milljónir króna. Fjárfest var í 7 nýjum sprotafyrirtækjum fyrir samtals 370 milljónir króna,  í 10 fyrirtækjum sem sjóðurinn átti í áður fyrir samtals 349 milljónir króna og í 3 samlagssjóðum fyrir samtals 323 milljónir króna.
 
Nánar...
 
Helga Valfells ráðin framkvæmdastjóri

Helga Valfells.
Stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins hefur ákveðið að ráða Helgu Valfells framkvæmdastjóra sjóðsins. Hún tekur við af Finnboga Jónssyni sem hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands.

Helga er fædd 4. apríl 1964. Hún lauk stúdentsprófi frá MH af eðlisfræðisviði árið 1983, lauk BA-prófi í hagfræði og enskum bókmenntum frá Harvard University 1988 og MBA námi við London Business School árið 1994.

Nánar...
 
Nýsköpunarsjóður kaupir 35% í Kerecis

Dr. Balduri Tumi Baldursson.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hefur keypt 35% hlut í lækningavörufyrirtækinu Kerecis og mun jafnframt veita fyrirtækinu lán með breytirétti.

Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu en fjárfestingasamningurinn var undirritaður í síðustu viku. Fjárfestingin verður í nokkrum áföngum næstu 12 mánuði og eru áfangagreiðslur háðar framgangi þróunarverkefna Kerecis.
Nánar...
 
Gleðileg jól og gæfuríkt nýtt ár

Bestu óskir um gleðileg jól og gæfuríkt nýtt ár.

Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.

Stjórn og starfsfólk Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins

 
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins rekinn með 76 milljóna króna hagnaði

Fréttatilkynning frá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins var rekinn með 76  milljóna króna hagnaði fyrstu 6 mánuði ársins 2009.

Í lok júní námu heildareignir sjóðsins  4.265  milljónum króna og var eigið fé hans á sama tíma 4.035 milljónir króna eða sem nemur  95 % af heildareignum. 

Á fyrri hluta ársins hefur Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins fjárfest fyrir rúman hálfan milljarð króna, þar af beint í fimm nýjum verkefnum fyrir um 300  milljónir króna. Þessi verkefni eru:

Nánar...
 
Nýsköpunarsjóður kaupir hlut í Mentis Cura ehf.

Nýsköpunarsjóður hefur fjárfest í Mentis Cura ehf með kaupum á 10% eignarhlut í félaginu. Mentis Cura var stofnað árið 2004 í kringum rannsóknarverkefni um greiningu á Alzheimer sjúkdómnum sem hófst árið 2000. Stofnandi félagsins er Kristinn Johnsen og er hann framkvæmdastjóri og einn af stærri hluthöfum félagsins.

Félagið einbeitir sér að þróun á greiningaraðferðum á sjúkdómum tengdum miðtaugakerfi sem leiða til glapa hjá öldruðum og einnig á greiningu á ofvirkni í börnum. Stuðst er við heilarit í þessum greiningum. Félagið hlaut nýlega Nýsköpunarverðlaun Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar og Útflutningsráðs.

Nánar...
 
<< Byrjun < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 1 - 13 af 203

Ársskýrsla NSA 2009

Hægrismelltu á myndina
til að ná í ársskýrsluna.
Forsíða arrow Í brennidepli

Lán með breytirétti

Design templateLán til nýsköpunar- og sprotafyrirtækja með breytirétti í hlutafé. Meira...

Skjalasafn

Hér er að finna ýmis skjöl sem hægt er að sækja. Meira...

Innranet NSA

 Joomlart ForumÞetta er innri vefur NSA og aðeins opinn starfsmönnum og samstarfsaðilum. Meira...