Fréttir og útgáfa

Nýsköpunarsjóður selur eignahluti sína í Sjávarleðri hf.

13.9.2010

  • NSA_Rodskinn_Sjavarledur

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins (NSA) og nýstofnað hlutafélag Roðskinn ehf. tilkynntu í dag samkomulag um kaup Roðskinns á öllum eignarhlutum sjóðsins í Sjávarleðri hf. á Sauðárkróki, tæplega 50%. Roðskinn ehf. er í eigu sömu aðila og Norðurströnd ehf. á Dalvík, en Norðurströnd á fyrir rúmlega 30% í félaginu.

Sjávarleður var stofnað á árinu 1994 um þróun á leðri unnu úr fiskroði.  Sjóðurinn gerðist hluthafi á árinu 2000 og hefur verið einn af stærstu hluthöfum og bakhjörlum félagsins síðan þá.  Sjávarleður hefur þróað og sérhæft sig í framleiðslu hágæða leðurs úr mismunandi fisktegundum. Karfaleður, laxaleður, hlýraleður og þorskleður er hvert um sig gætt sérstökum eiginleikum auk þess sem þau eru framleidd í fjölda lita og mismunandi áferðum. Sjávarleður leggur sérstaka áherslu á gæði vörunnar og góða þjónustu og hefur tekist að byggja upp viðskiptasambönd víða um heim við kröfuharða viðskiptavini í fjölbreyttum iðnaði og handverki.  Sjávarleður hefur einnig endurvakið aðra sútun og framleiðslu á mokkaskinnum á Íslandi með stofnun Sauðskinns ehf. og kaupum á Loðskinni ehf. Þau félög salta, súta og selja gærur og mokkaskinn til ýmissa landa.

Hjá Sjávarleðri og tengdum félögum starfa um 17 starfsmenn.

Um Roðskinn ehf.
Eigendur Roðskinns hafa komið að Sjávarleðri frá upphafsárum þess í gegnum Norðurströnd sem verið hefur hluthafi frá árinu 2004. Norðurströnd hefur komið að  fjölda verkefna um nýjungar til bættrar fiskvinnslu. Auk hefðbundinnar vinnslu á Dalvík og Blönduósi og sérhæfingar í vinnslu steinbíts hefur félagið staðið framarlega í þróun og framleiðslu á ýmsum óhefðbundnum afurðum til aukinnar verðmætasköpunar í sjávarútvegi.

Guðmundur St. Jónsson, framkvæmdastjóri Norðurstrandar og Roðskinns sagði eftirfarandi um samninginn:   „Norðurströnd hefur átt gott samstarf með Nýsköpunarsjóði undanfarin ár við uppbyggingu Sjávarleðurs og dótturfélaga þess. Það er ásetningur okkar að halda áfram að byggja ofan á það góða starf sem þar hefur verið unnið. Við þökkum sjóðnum fyrir árangursríkt og gott samstarf.“

Um Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins (www.nsa.is) er áhættufjárfestir sem tekur virkan þátt í þróun og vexti atvinnulífsins með því að fjárfesta í vænlegum nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum. Nýsköpunarsjóður er óháður fjárfestingarsjóður í eigu íslenska ríkisins.

Helga Valfells, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins hafði þetta að segja um söluna:  „Nýsköpunarsjóður hefur verið virkur þátttakandi í starfi Sjávarleðurs um langt skeið. Félagið hefur nú náð góðum þroska og stendur vel. Nýsköpunarsjóður fagnar því að nú vilji aðrir taka við keflinu og vart er hægt að hugsa sér betri arftaka en Roðskinn. Sjóðurinn vill þakka hluthöfum Sjávarleðurs, stjórn og starfsmönnum félagsins ánægjulegt og farsælt samstarf og óskar þeim alls hins besta.“


 

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica