Fréttir og útgáfa

Amer Sports kaupir Nikita

19.12.2011

  • nikita_logo

Finnska sportvörusamsteypan Amer Sports hefur fest kaup á íslenska fyrirtækinu Nikita ehf sem hannar snjóbretta- og tískufatnað. Nikita verður áfram með starfsemi á Íslandi.

Amer Sports er alþjóðlegt fyrirtæki sem á fjölda sterkra vörumerkja á borð við Salomon, Arc'teryx, Wilson, Atomic og er fyrirtækið skráð á NASDAQ OMX Helsinki. Félagið veltir tæpum 2 milljörðum evra og starfsmenn eru um sex þúsund. Amer Sports hyggst byggja upp nýtt svið með áherslu á bretta og lífstílssport og eru kaupin á Nikita fyrsta skrefið í þá átt. Nikita á að verða lykil vörumerki í þeirri stefnu, og stofnendur félagsins virkir þátttakendur í þeirri þróun.

Nikita var stofnað árið 2000 af þeim Aðalheiði Birgisdóttur, Rúnari Ómarssyni og Valdimari Hannessyni. Fatnaður Nikita er seldur í 1500 búðum í 30 löndum. Kaup Amer Sports á Nikita mun tryggja framtíðarvöxt vörumerkisins.

Aðalheiður Birgisdóttir, stofnandi Nikita: „Okkur er það mikil ánægja að vinna með fyrirtæki eins og Amer Sports sem tryggir áframhaldandi þróun vörumerkisins. Það verður spennandi að sjá hvað við getum skapað og þróað í samstarfi við stórfyrirtæki eins og Amer Sports, sem er fullt af reynsluboltum á öllum sviðum vöruþróunar.“  

Rúnar Ómarsson, stofnandi Nikita: „Við erum mjög spennt að vera orðin hluti af Amer Sports. Styrkleiki þeirra mun gefa okkur tækifæri til að fjölga vöruflokkum í samstarfi við topp-fólk í okkar geira, auka markaðssetningu og almennt gefa Nikita sem alþjóðlegu vörumerki frábært tækifæri til að komast upp á næsta stig.“

Helga Valfells, framkvæmdarstjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins: "Nýsköpunarsjóður fjárfesti í Nikita árið 2000 og hefur verið ánægjulegt fyrir sjóðinn að taka þátt í að byggja upp alþjóðlegt vörumerki frá Íslandi. Við höfum notið þess að vinna með sterkum frumkvöðlum sem hafa haft mikinn metnað og elju í að fylgja fyrirtækinu eftir. Kaup Amer á Nikita eru staðfesting á því að Nikita er sterkt alþjóðlegt vörumerki.“

Frekari upplýsingar veitir:

  • Nýsköpunarsjóður: Helga Valfells S. 510 1800/861 0108 Netfang.Helga@nsa.is
  • NIKITA: Rúnar Omarsson S. 8976151 Netfang.runar@nikitaclothing.com

 

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica