Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins fjárfestir í cooori
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins ásamt öðrum fagfjárfestum, hafa gert samning um kaup á hlutafé í fyrirtækinu cooori ehf.
Fyrirtækið vinnur að þróun veflægs hugbúnaðar til tungumálanáms sem byggir á nýjustu tækni í máltöku- og kennslufræðum og notar gervigreind til að aðlaga kennsluna að hverjum einstaklingi fyrir sig og hámarka árangur.
Hugmyndin kviknaði í tengslum við doktorsnám eins stofnanda cooori, Arnars Jenssonar þegar hann stundaði nám í Japan í verkfræði með áherslu á beitingu tölvutækni í málvísindum. Samhliða doktorsnáminu stundaði hann nám í Japönsku sem er mjög frábrugðið öðrum tungumálum sem Arnar hafði lært. Arnar leitaði víða lausna til að hraða náminu og komst að raun um að fátt væri í boði.

