Finnska sportvörusamsteypan Amer Sports hefur fest kaup á íslenska fyrirtækinu Nikita ehf sem hannar snjóbretta- og tískufatnað. Nikita verður áfram með starfsemi á Íslandi.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hefur samþykkt að kaupa hlutafé í fyrirtækinu IceMedix ehf.
Á dögunum var undirritaður fjárfestingarsamningur milli fjárfestahóps sem Nýsköpunarsjóður leiðir við íslenska sprotafyrirtækið GreenQloud sem vinnur að því að opna umhverfisvænasta tölvuský heimsins hér á Íslandi.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins ásamt öðrum fagfjárfestum, hafa gert samning um kaup á hlutafé í fyrirtækinu cooori ehf. Fyrirtækið vinnur að þróun veflægs hugbúnaðar til tungumálanáms sem byggir á nýjustu tækni í máltöku- og kennslufræðum og notar gervigreind til að aðlaga kennsluna að hverjum einstaklingi fyrir sig og hámarka árangur.