Finnska sportvörusamsteypan Amer Sports hefur fest kaup á íslenska fyrirtækinu Nikita ehf sem hannar snjóbretta- og tískufatnað. Nikita verður áfram með starfsemi á Íslandi.
Lesa meira
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hefur samþykkt að kaupa hlutafé í fyrirtækinu IceMedix ehf.
Á dögunum var undirritaður fjárfestingarsamningur milli fjárfestahóps sem Nýsköpunarsjóður leiðir við íslenska sprotafyrirtækið GreenQloud sem vinnur að því að opna umhverfisvænasta tölvuský heimsins hér á Íslandi.
Lesa meira
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins ásamt öðrum fagfjárfestum, hafa gert samning um kaup á hlutafé í fyrirtækinu cooori ehf. Fyrirtækið vinnur að þróun veflægs hugbúnaðar til tungumálanáms sem byggir á nýjustu tækni í máltöku- og kennslufræðum og notar gervigreind til að aðlaga kennsluna að hverjum einstaklingi fyrir sig og hámarka árangur.
Lesa meira
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins var rekinn með 16 milljóna króna hagnaði árið 2010. Nýsköpunarsjóður seldi hlutafé í fjórum fyrirtækjum á árinu og var söluhagnaður af þeim 234 milljónir króna.
Lesa meira
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins ásamt sprotafjárfestum, þar á meðal fjárfestingafélaginu Investa hafa gert samning um kaup á hlutafé í fyrirtækinu Mint Solutions ehf. Markmið fyrirtækisins er að vera leiðandi í gerð lausna til lyfjaeftirlits á sjúkrastofnunum og hefja markaðssetningu erlendis.

Hérna getur þú sótt merki Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Skjalið er á PDF formi.