Eignasafn
  • Videntifier-Technologies-logo

Videntifier Technologies

Videntifier Technologies var stofnað 2007 og er sprottið upp úr rannsóknarvinnu við Háskólann í Reykjavík á sviði leitar í myndgagnagrunnum.

Í dag er aðal áherslan og sú markaðssylla, sem Videntifier Technologies hefur valið sér, að auðvelda lögreglu að finna ólöglegt myndefni á tölvubúnaði. Vara félagsins, Videntifier Forensic, getur á alsjálfvirkan hátt borið kennsl á myndefni á tölvum og þannig aðstoðað við að uppræta barnaklám og annað ólöglegt myndefni. Kerfið eykur afköst lögreglunnar til muna við greiningu myndefnis. Félagið markaðssetur lausnina til lögregluembætta um allan heim, og er nú að byggja sér alþjóðlegt sölunet umboðsmanna.

Videntifier Technologies var stofnað af Friðriki Ásmundssyni og Herwig Lejsek. Framkvæmdastjóri félagsins er Herwig Lejsek.

Nýsköpunarsjóður kom að félaginu árið 2010 og hlutdeild sjóðsins er 24,4%.

Egill Másson situr í stjórn Videntifier Technologies fyrir hönd sjóðsins (og er formaður stjórnar).

Heimasíða Videntifier Technologies er www.videntifier.com

 


 

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica