Eignasafn
  • cooori-logo

Cooori


Cooori er vef-lausn til tungumálanáms sem byggir á nýjustu tækni í máltöku- og kennslufræðum gervigreind og talgrennslum. 

Cooori hefur algera sérstöðu á sviði slíkra lausna sem byggir á eftirfarandi:

  • Cooori greinir hvað nemandanum gengur vel að læra og hvað nemandanum gengur illa að læra og hámarkar skilvirkni námsins fyrir hvern nemanda.

  • Cooori heldur utan um alla þætti tungumálanáms: orðaforða, málfræði, framburð, talmálsskilning, les- og ritþjálfun, samtalsþjálfun.

  • Cooori styður einnig þá sem er lengra komnir í tungumálanámi, hefur t.d. mun meiri orðaforða en aðrar lausnir. Aðstandendur eru með sérþekkingu á tungutækni, gervigreind og japönsku.

Cooori var stofnað árið 2010 af Arnari Þór Jenssyni, Birni Kristinssyni, Eyþóri Eyjólfssyni, Herði Kristbjörnssyni, Jens Björgvini Helgasyni, Steindóri Emil Sigurðssyni og Þorsteini Guðlaugi Gunnarssyni. Framkvæmdastjóri félagsins er Arnar Þór Jensson.

Nýsköpunarsjóður kom að félaginu árið 2011 og hlutdeild sjóðsins er 21%.

Hekla Arnardóttir situr í stjórn Cooori fyrir hönd sjóðsins.

Heimasíða Cooori er www.cooori.com




 

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica