Eignasafn

Upplýsingatækni

Fyrirsagnalisti

agr_logo2

AGR

AGR þróar og selur lausnir til hagræðingar í rekstri aðfangakeðjunnar.

 
Betware-logo

Betware

Betware þróar leikjalausnir fyrir lotterí sem gerir þeim kleift að auka tekjur sínar með sölu í gegnum internet og farsíma.

 
cooori-logo

Cooori

Cooori er vef-lausn til tungumálanáms sem byggir á nýjustu tækni í máltöku- og kennslufræðum gervigreind og talgrennslum. 

Cooori hefur algera sérstöðu á sviði slíkra lausna sem byggir á eftirfarandi:

 
dohop_large

Dohop

Dohop var stofnað 2004 til að þróa og reka vef sem auðveldar neytendum um allan heim að finna ódýrar flugferðir og tengingar milli þeirra, hvort sem flogið er með lágfargjaldaflugfélögum eða ekki.

 
gagnavarslan_logo

Gagnavarslan

Gagnavarslan býður upp á heildarlausn á sviði skjalamála og varðveislu.

 
gogogic

Gogogic

Gogogic sérhæfir sig í gerð samfélagsleikja sem má aðlaga fyrir mismunandi miðla og tæki. Leikirnir eru af öllum stærðum en eru sérstaklega ætlaðir til þess að fólk geti nálgast þá og spilað með sem einföldustum hætti – til dæmis í gegn um vafra eða farsíma. 

 
gogoyoko_logo

gogoyoko

gogoyoko var stofnað til þess að leiða þýðingarmikla breytingu í tónlistariðnaðinum með viðskiptalíkani sem nefnist "Fair Play in Music" og setur rétt listamanna í algjöran forgang. 

 
grapewire_logo

Grapewire

Grapewire er ungt og framsækið hugbúnaðarfyrirtæki um þróun vefsölulausna fyrir alþjóðlegan tónlistariðnað. Félagið hefur svo fært sig inná þjónustu við fjarskiptafyrirtæki.

 
menandmice-logo

Menn og mýs

Menn og mýs ehf  þróar og selur hugbúnaðarlausnar til stjórnunar á DNS, DHCP og IP innviðum (DDI) fyrir stór alþjóðleg fyrirtæki undir nafninu Men & Mice Suite.

 
Mentor_logo

Mentor

Mentor var stofnað árið 2000 og frá upphafi hefur fyrirtækið lagt metnað sinn í að hjálpa skólum að styðja hvern einstakling betur og býður á grundvelli þess upp á heildstætt upplýsinga- og námskerfi fyrir alla sem starfa með börnum.

 
NordicPhoto_logo

NordicPhotos ehf.

NordicPhotos ehf sérhæfir sig í sölu ljósmynda í gegnum internetið um allan heim eftir ljósmyndara á Norðurlöndunum ásamt því að selja ljósmyndir úr þekktum erlendum myndabönkum á Norðurlöndum.

 
Stiki-logo

Stiki

Stiki ehf. var stofnað árið 1992. Fyrirtækið þróar nú tvenns konar hugbúnaðarlausnir; annars vegar til að meta áhættu í rekstri og hins vegar til að meta gæði heilbrigðisþjónustu.

 
transmit_logo

Transmit

Transmit var stofnað til að þróa hugbúnað fyrir umsýslu rafræns markaðsefnis sem henti litlum og meðalstórum fyrirtækjum, en núverandi lausnir einblína á stærri fyrirtæki.

 
Videntifier-Technologies-logo

Videntifier Technologies

Videntifier Technologies var stofnað 2007 og er sprottið upp úr rannsóknarvinnu við Háskólann í Reykjavík á sviði leitar í myndgagnagrunnum.

 


 

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica