Tölvuský
GreenQloud - grænt tölvuský er fyrsta umhverfisvæna tölvuský heims.
Um þessar mundir undirbúa fjölmörg fyrirtæki byggingu tölvuvera á Íslandi og horfa fyrst og fremst til erlendra tölvuskýveita sem viðskiptavina, en Ísland er talið hafa töluvert forskot fyrir rekstur tölvuvera (sjá t.d. www.invest.is).
GreenQloud tölvuskýið stuðlar að fullnýtingu orkuauðlinda með stærri hluta virðiskeðjunnar staðsetta á Íslandi. Frumkvöðlarnir hafa mikla þekkingu á tölvuskýsmarkaðnum og eru langt komnir með þróun þjónustunnar.
Félagið fékk verkefnastyrk frá RANNÍS fyrir árin 2010-2012 – styrkur fyrir árið 2010 nam 8,5 mkr.
Tölvuský var stofnað árið 2010 af Eiríki Sveini Hrafnssyni og Tryggva Lárussyni. Framkvæmdastjóri félagsins er Eiríkur Sveinn Hrafnsson.
Nýsköpunarsjóður kom að félaginu árið 2010 og hlutdeild sjóðsins er 19,8%.
Egill Másson situr í stjórn GreenQloud fyrir hönd sjóðsins.
Heimasíða Tölvuskýs er www.greenqloud.com

