Fjölblendir ehf. hefur þróað nýtt eldsneytiskerfi sem dregur úr útblæstri. Kerfið er kallað TCT (Total Combustion Technology) og er uppfinning Kristjáns Björns Ómarssonar.
Fyrirtækið hefur þróað einstakt tölvukerfi sem fylgist með orkunotkun um borð og flotastjórnunarkerfi sem gerir stjórnendum í landi kleyft að fylgjast með frammistöðu alls flotans.
ReMake Electric hefur þróað rafskynjara sem kemur í stað hefðbundinna rafmagnsöryggja. Búnaðurinn nýtist vel sem greiningartæki og gefur notendum, bæði á heimilum og í stærri fyrirtækjum tækifæri á að vera upplýst um rafmagnsnotkunina og stuðla þannig að orkusparnaði og auknu öryggi.