Primex ehf.
Primex ehf er fyrirtæki í sjávarlíftækni; sérhæft í framleiðslu á einstaklega hreinu kítíni og kítósani.
Hráefnið er eingöngu skel af ferskri kaldsjávarrækju (Pandalus borealis) sem unnin er á Norðurlandi. Um 14 manns vinna í verksmiðju og á skrifstofu fyrirtækisins á Siglufirði. Primex markaðssetur og selur gæðavottuð, rekjanleg, vísindalega áreiðanleg og nýstárleg efni til margvíslegra nota:
LipoSan Ultra® eru fitubindi-og kólesteróllækkandi efni.
ChitoClear® vörulínan er mjög fjölbreytt og er m.a. notuð sem hráefni í matvæla- og snyrtivörur og sem aðalefni í plástra og sárabindi og í sáragel fyrir dýr.
Primex var stofnað árið 1997 af fyrirtækjunum Genís hf, Ramma hf og SR-mjöli hf. Framkvæmdastjóri félagsins er Ólafur Helgi Marteinsson.
Nýsköpunarsjóður kom að félaginu árið 1998 og hlutdeild sjóðsins er 22,5%.
Finnur Árnason situr í stjórn Primex fyrir hönd sjóðsins.
Heimasíða Primex er www.primex.is

