Mint Solutions
Fyrirtækið Mint Solutions hefur hannað MedEye lausnina sem auðveldar sjúkrastofnunum að hafa eftirlit með lyfjagjöfum. Markmið fyrirtækisins er að vera leiðandi í gerð lausna til lyfjaeftirlits á sjúkrastofnunum og hefja markaðssetningu erlendis.
Mistök við lyfjagjöf eru alvarlegt vandamál sem allar sjúkrastofnanir glíma við og kostar fjölda mannslífa á ári hverju. MedEye skannar lyf myndrænt og greinir lyfjategundir til að koma í veg fyrir mistök. MedEye eykur öryggi við lyfjagjöf verulega og er einstakt í sinni röð. Sótt hefur verið um einkaleyfi á lausninni.
Mint Solutions var stofnað árið 2010 af Gauta Reynissyni, Ívari Helgasyni og Maríu Rúnarsdóttur. Framkvæmdastjóri félagsins er Gauti Reynisson.
Nýsköpunarsjóður kom að félaginu árið 2011 og hlutdeild sjóðsins er 11%.
Hekla Arnardóttir situr í stjórn Mint Solutions fyrir hönd sjóðsins.
Heimasíða Mint Solutions er www.mint.is

